Limatherm er pólskur framleiðandi hitanema sem hefur verið að sækja í sig veðrið á Evrópumarkaði síðustu ár.
Naust Marine hefur nú hafið sölu á þessum gæða hitanemum og lagerfærir gott úrval af hitanemum með haus, með snúru eða yfirborðshitanemum. Úrvalið samanstendur af Pt100 nemum og hitatvinn nemum. Auk þess er hægt að sérsmíða nema eftir óskum hvers og eins á innan við viku frá pöntun.
Limatherm starfar eftir ISO 9001:2000 gæðakerfi í framleiðslu sinni ásamt því hafa PN-EN ISO/IEC 17025 vottun sem snýr að prufunum og kvörðunum á rannsóknarstofum.
Heimasíða Limatherm Sensor:
http://www.limathermsensor.com/index.html?lang_id=UK