Fyrr á þessu ári afhenti Naust Marine eitt
af þremur ATW kerfum sem rússneska fyrirtækið Murmansk Trawl Fleet hefur
fest kaup á. Kerfið verður sett upp um borð í rússneska verksmiðjutogaranum
Admiral Starikov, sem er af Monzund gerð byggður í kring um 1990.
Kaupin á ATW kerfinu fela í sér að sett
verður upp ný spilstjórnun frá Naust Marine í skipinu. Þá verður skipt um
Thyristor drifin, sem breyta AC straumnum frá AC neti skipsins í DC straum sem
knýr DC mótorana á togvindunum.
Stjórnun spilkerfisins verður í brú
og vinduklefa en það er nýjung að stjórn spila fari fram í brú í slíkum
skipum. Til þessa hefur eingöngu verið hægt að stjórna togvindunum
úr vinduklefa og hafa skipanir til vinduklefa verið gefnar í gegn um kallkerfi
skipsins.
Seinni kerfin fyrir
Murmansk Trawlf Feet verða afhent í nóvember og desember en þau munu fara um
borð í samskonar togara af Monsund gerð.
Naust Marine hefur sérhæft
sig í spilkerfum Monsund skipa og er eina fyrirtækið í heiminum sem sérhæfir
sig í endurnýjun stjórnbúnaðar í slíkum skipum. Eftir afhendingu kerfanna þriggja hefur Naust Marine afhent 12 kerfi í Monzund togara.
Monsund skipin voru smíðuð
í Austur-Þýskalandi fram til ársins 1992. 37 skip voru smíðuð þannig að markaðshlutdeild Naust Marine er nú rúm 30%.