Rússneski verskmiðjutogarinn Alexey Anichkin hóf veiðar á Reykjaneshrygg með nýju ATW kerfi frá Naust Marine í vor.
Lokafrágangur vegna uppsetningar kerfisins fór fram í Hafnarfjarðarhöfn þar sem skipið hafði viðkomu á leið sinni á miðin. Þaðan fóru síðan tveir menn frá Naust Marine, skipstjóri og tæknimaður, með skipinu á veiðar. Þar sem góð veiði var í úthafinu og Alexey Anichkin því ekki á leið í land á næstunni fengu þeir far aftur í land með Helgu Maríu RE, sem var á heimleið af svæðinu.
Anichkin, sem er í eigu FOR Fishing í Kaliningrad, er smíður í Póllandi árið 1990. Hann er 85 metra langur og aðalvél hans er um 5000 hp. Togarinn var áður með glussavindur en fékk nýjar Ibercisa MAI/6000 IS rafmagnsvindur í Kaliningrad síðastliðinn vetur. Við þær voru settir 355 kW AC mótorar sem stjórnað er með AC tíðnibreytum frá Ansaldo á Ítalíu.
ATW búnaðurinn í skipinu samanstendur af tíðnibreytum fyrir AC mótora, chopperum sem stjórna bakafli inn á brennara og bakaflsbrennurunum, frá Danoterm í Danmörku.
Kerfið um borð í Alexey Anichkin er frábrugðið hefðbundnum AC kerfum að því leyti að notaðir eru bakaflsbrennarar til að losna við bakafl, sem verður til við slökun. Þetta er ekki lausn sem Naust Marine mælir sérstaklega með, þar sem bakaflið nýtist þá ekki til olíusparnaðar líkt og í hefðbundnum kerfum.
Þetta var hins vegar gert svona í þessu tilfelli að ósk útgerðarinnar. Fyrir vikið er kerfið heldur ódýrara enda er stjórnbúnaður töluvert einfaldari. Að öðru leyti er kerfið ekki frábrugðið kerfum með fullri AUTO stjórnun sem heldur trollinu ávalt í réttri stöðu og eykur þannig fiskihæfni trollsins til muna.
Naust Marine óskar útgerð og áhöfn til hamingju með kerfið.