Fyrirtækið Þorbjörn HF í Grindavík, sem á og rekur frystitogarann Gnúp GK 11, hefur samið við Naust Marine um uppfærslu ATW kerfis skipsins. Einnig verður skipt um tvo grandaravindumótora. Grandaraspilunum verður eftir það stjórnað með stiglausri hraðastjórnun, sem er mikil bylting frá þrepaskiptri stjórnun. Einnig gefur þetta möguleika á hraðari köstun og hífingu, sem getur sparað mikinn tíma.
Um borð í Gnúpi eru upphafleg rafmagnspil frá árinu 1981 en skipt var um stjórnbúnað fyrir togspilin fyrir 10 árum. Uppfærslan nú felst einkum í því að skjámyndakerfi frá Scantrol verður skipt út fyrir skjámynd Naust Marine. Einnig verður skipt um iðntölvu og stjórnbúnaður í brú og vinduklefa uppfærður.
Að uppfærslunni lokinni munu tæknimenn Naust Marine geta tengst ATW kerfi skipsins í gegnum netið eða símatengingu. Það getur reynst mjög þægilegt komi upp bilanir síðar eða vilji skipstjórnarmenn breyta virkni kerfisins á einhvern hátt. Þá opnar þetta möguleika á kennslu í gengum net eða síma. Slíkt getur sparað mikinn tíma og bætir mjög alla þjónustu.