Harris Electric INC, samstarfsaðili Naust Marine í Bandaríkjunum, greinir frá því í fréttatilkynningu að ánægja sé með rafdrifna ATW togvindukerfið frá Naust Marine sem sett var upp í togaranum F/T Northern Eagle í upphafi þessa árs. Kerfið var tekið í notkun við uppfhaf Alaksaufsavertíðarinnar í janúar.
Áður hafði kerfið verið sett upp í skipinu, sem í eigu stórfyrirtækisins American Seafoods, er það lá við bryggju í Seattle. Prófanir fóru síðan fram á norðanverðu Kyrrahafi eins og áður hefur komið fram hér á síðunni. Þýðingu á fréttatilkynningu Harris Electric má lesa hér á eftir:
„Við erum mjög ánægð með kerfið, ánægð með þá þjónustu sem við höfum fengið. Það er ekki hægt að segja neitt annað.,“ segir Jens Johnsen, skipstjóri FT/ Northern Eagle eftir að hafa notað ATW kerfi Naust Marine í heila vertíð. „Þetta er mikil framför frá því sem við höfðum áður. Það heldur okkur frá botninum, heldur okkur frá vandræðum. Þetta opnar marga möguleika sem við höfðum ekki áður.“
ATW kerfið sem selt var til American Seafoods er stærsta og flóknasta kerfi sem Naust Marine hefur selt til Bandaríkjanna en áður hefur Naust Marine framleitt kerfi til notkunar um borð í togaranum Bristol Explorer sem er í eigu B&N Seafoods. Kerfinu í Northern Eagle tilheyra 2ea Ibercisa MAI-E/600/4400-36/IS togvindur (með 95 tonna toggetu), 2ea Ibercisa MCS-E/E/50/4000-11,2 kapalvindur, 380 kw DC mótor, síunarkerfi og 4ea AUTO GEN aflstjórnkerfi.
Harris Electric Inc. kom að verkinu bæði varðandi söluferlið og breytingar á aðaltöflu. Þá hafa verkfræðingar Harris Electric hlotið þjálfun hjá Naust Marine, bæði í Bandaríkjunum og á Íslandi, til að geta boðið notendum ATW kerfa upp á þjónustu sína bæði í Seattle WA og Duch Harbor AK.
Naust Marine hefur nú framleitt rúmlega 80 ATW togvindukerfi (Automatic Trawl Winch) sem seld hafa verið víða um heim og 30 AUTO GEN kerfi. Rafdrifin vindukerfi hafa sótt mjög á að undanförnu enda telja sífellt fleiri eigendur, skipstjórar og sjómenn um borð í togurum rafdrifnar vindur bæði betri og umhverfisvænni kost en glussavindur.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðunum www.naustmarine.com og www.harriselectricinc.com.