Í janúar gangsettu
starfsmenn Naust Marine tvö ATW togvindukerfi í Monsund togurum rússneska fyrirtækisins Murmansk Trawl Fleet (MTF). Skipin sem um ræðir heita Oleg Naydenov og
Zakhar Sorokin en frá því um mitt síðasta ár hefur MTF keypt 5
ATW togvindukerfi frá Naust Marine sem öll eru ætluð um borð i Monsund togara fyrirtækisins.
Skipstjóri og
tækinmaður Naust Marine héldu til Las
Palmas í lok desember til að gangsetja kerfin og kenna skipstjórnendum notkun
þeirra.
Yfir áramótin
unnu þeir um borð í Oleg Naydenov þar sem hann lá við bryggju í Las
Palmas. Niðursetning
kerfisins var yfirfarin og vindur gangsettar og gekk sú vinna vel. Þann 3
janúar héldu starfsmenn Naust Marine síðan með skipinu á veiðar. Haldið var til Senegal en þangað
er fjögurra daga sigling frá Las Palmas.
Á leiðinni voru tekin nokkur stutt prufuholl og því var allt til reiðu þegar
komið var á miðin.
Þegar veiðar
hófust gekk allt að óskum. Erfitt
reyndist hins vegar að koma mönnum Naust
Marine aftur í land þar sem ekki var talið
öruggt að fara í land í Senegal. Varð þetta til þess að mennirnir urðu að bíða um
borð í skipinu í tíu daga. Að lokum komust þeir um borð í flutningaskip á miðunum
og sigldu með því tveggja daga siglingu til Naodibou í Mauritaniu.
Í Naodibou beið
Monsund togarinn Zakhar Sorokin sem var að koma frá Las Palmas að lokinni gangetningu
ATW-kerfisins þar. Höfðu tveir tæknimenn
Naust Marine farið til Las Palmas í byrjun janúar til að yfirfara niðursetningu og gangsetja kerfið. Eftir að þeirri vinnu var
lokið tafðist skipið í nokkra daga vegna vélarbilunar og því passaði það til að
þegar það kom til Noadibou voru mennirnir, sem verið höfðu um borð í Oleg Naydenov,
nýkomnir þangað.
Starfsmenn Naust
Marine héldu nú á veiðar með Zakhar Sorokin og voru þeir um borð í þrjá daga við að
fínstilla kerfið og kenna áhöfninni notkun
þess. Gekk það að óskum og að þessu sinni voru engin vandræði við að koma þeim
aftur í land.
Búnaðurinn hefur
í alla staði reynst vel um borð í báðum skipum og eru skipstjórar og áhafnir mjög ánægðir með hann.