Bandaríska sjávaútvegsfyrirtækið American Seafoods, sem staðsett er í Seattle, rekur nokkra stóra togara sem gerðir eru út til veiða á Alaskaufsa (Alaskan Pollock) frá Dutch Harbor í Berings hafi.Aðrar tegundir sem veiddar eru, í minna mæli þó, eru kolategund sem kallast á ensku Yellow fin og kolmunnategund sem nefnist Southern Blue whiting. 
Veiðisvæðið markast af Beringshafi í norðri, skammt norðan við St Georg eyju, en í suðri er veiðin að mestu úti fyrir ströndum Oregon fylkis.
Flotinn sem er að veiðum á Beringshafi leggur að mestu upp frá Dutch Harbor sem er staðsett á einum af Aleutan eyjaklasanum á skilum Kyrrahafs og Beringhafs en á þeim slóðum er ein aðalveiðislóð fyrir Alaskaufsa.
Á meðfylgjandi mynd má sjá togarann Norhern Eagle, sem er eitt af Alaskaskipum American Seafoods. Tveir starfsmenn Naust Marine fóru fyrr á þessu ári í prúfutúr með skipinu en um borð er ATW togvindu- og kapalvindubúnaður frá Naust Marine. Ufsavertíðin var þó ekki farin í gang og því var ákveðið að taka einn túr í Yellow fin sem er nauðalíkur skarkola en þó án rauðu doppanna.
Í áhöfn skipsins eru um 125 menn og konur og frystiafköst eru um 180 tonn á dag, auk 150 tonna mjölverksmiðju. Að sögn starfsmanns Naust Marine var veiðin eins og verið væri að moka sandi af hafsbotni. Fryst voru stöðugt um 180-190 tonn á dag og yfirleitt þurfti ekki að draga nema um 30 mínútur til að fá um 40-50 tonn af flatfiski.
Á þessum slóðum eru mjög slæm veður tíð og í umræddum túr lá vindhraðamælirinn oftast í efri kantinum og frostið í 10 gráðum. Ísing var því töluverð, þó skipið væri stórt. Þrátt fyrir mikil átök og erfið skilyrði reyndist búnaður Naust Marine í alla staði vel.