Fyrirtækið Blue Wave Operations Ltd hefur fest kaup á nýjum búnaði frá Naust Marine fyrir fyrstitogarann Blue Wave. Búnaðurinn samanstendur af nýjum Thyristor drifum fyrir togvindur ásamt ATW togvindustjórnkerfi. Einnig verður bætt við aflestri af lengd og átaki af kapalvindum, sem eru fyrir í skipinu, og aflesturinn settur inn á ATW skjámyndina. Þá mun Naust Marine setja upp AutoGen aflastjórnkerfii fyrir fjóra rafala í skipinu.
Blue Wave er frystitogari af Monsund gerð smíðaður í Rússlandi en 37 slík skip voru byggð á árunum 1986-1993. Um 30 þeirra eru enn í notkun sem togarar víða um heim, en að minnsta kosti tveimur slíkum togurum hefur verið breytt í rannsókanarskip.
Naust Marine hefur nú selt ATW kerfi í 14 af þeim 30 Monsund togurum sem enn eru í notkun og gerir það markaðshlutdeild ATW kerfa í þeim nálgast 50%. Samkvæmt heimildum Naust Marine hefur ekkert annað fyrirtæki í heiminum komist inn á þennan tiltekna markað og því er markaðshlutdeild Naust Marine í endurbyggingu spilkerfa Monsund togara 100%.
ATW kerfið frá Naust Marine er hannað til að auka veiðihæfni togveiðafæra með því að halda trollinu alltaf jöfnu í sjónum án tillits til vinds, strauma og togstefnu. Einnig færist stjórnun frá vinduklefa á dekki upp í brú, bæði fram og afturbrú. Skipstjóri getur því stjórnað spilunum úr frambrú í slökun, togi og hífingu
Í upprunalegu Monsund togurunum er engin spilstjórnun í brú heldur er spilum stjórnað frá vinduklefa með skipunum úr kallkerfi skipsinns. Vindumaður þarf því að vera á vakt í vinduklefa allan sólarnringinn til að taka við skipununum úr brú. Með tilkomu ATW kerfisins getur vindumaður hins vegar farið til annarar vinnu á dekki þegar köstun eða hífingu er lokið.
AutoGen aflastjórnkerfið frá Naust Marine hefur einnig komið sérstaklega vel út í þessum skipum þar sem upphaflegar aðalvélar þeirra eru helst til litlar. Hafa margar útgerðir því farið út í að stækka ljósavélar til að geta fært álag af aðalvélum yfir á ljósavélar.
Blue Wave er nú á Las Palmas þar sem verið er að skipta út ljósavélum. Með AutoGen búnaðinum verður hægt að færa alla rafmagnsframleiðslu af aðalvélum og yfir á ljósavélarnar. Einnig verður hægt að fullnýta afl ljósavéla með því að beina afgangsorku þeirra inn á rafala aðalvéla og nýta hana þar til að knýja skrúfuna.
Naust Marine óskar skipstjóra, áhöfn og útgerð Blue Wave til hamingju með búnaðinn.