Um miðjan júlí afhenti Naust Marine ATW spilkerfi og AutoGen búnað um borð í frystitogarann Gloríu sem er í eigu Úthafsskipa. Togarinn hafði þá verið í endurbyggingu í Póllandi í nokkra mánuði. 
Búnaður Naust Marine í skipinu samanstendur af ATW kerfi og tveimur togvindum (MAI-E/485/3700/34IS) frá Ibersica. Slíkar vindur hafa einnig verið keyptar um borð í Victoriu, annað skip Úthafsskipa, auk tveggja kapalvinda frá Ibercisa (MCS-E/60/3600-11,2).
Einnig var AutoGen stjórnkerfi Naust Marine gangsett í Gloríu en það er sjálvirkt aflstjórnarkerfi fyrir rafala. Með því getur vélstjóri stillt álag á hverjum rafali fyrir sig og sett fyrirfram ákveðið hámark sem tryggir að ekki verði yfirálag á kerfinu.
Þá er sjálvirkt Start/Stop kerfi á ljósavélum Gloríu þannig að þær fara sjálfkrafa í gang og stoppa eftir álagi hverju sinni.
Naust Marine óskar áhöfn og eigendum Gloríu til hamingju með nýja búnaðinn.
Naust Marine hefur nú afhent hátt í 80 ATW kerfi sem eru í notkun í skipum um allan heim. Kerfin hafa verið í stöðugri þróun frá því fyrsta kerfið var sett upp og taka enn stöðugum breytingum m.a vegna ábendinga notenda um allan heim.
Skipin sem nota kerfin eru allt frá 28 metra togbátum með 1000 hestafla vélar upp í 145 metra togara með 11.000 hestafla vélar.