Þeim löndum fjölgar stöðugt þar sem finna má búnað frá Naust Marine.
Naust Marine hefur á undanförnum árum lagt töluverða vinnu í að kynna vörur fyrirtækisins í Asíu. Nú virðist sem sú vinna sé farin að skila árangri m.a. með sölu á búnaði til fyrirtækja í Suður-Kóreu og Kína.
Útgerðin Dong Won Industries co Ltd í Suður-Kóreu festi fyrir nokkru kaup á kapalvindu og stjórnbúnaði frá Naust Marine fyrir skipið Maestro sem gert er út frá Suður-Ameríku. Búnaðurinn var settur í skipið í Lima í Perú og fór starfsmaður NM á staðinn til að hafa yfirumsjón með gangsetningu og fara yfir lokastillingar.
Nýlega gekk Naust Marine einnig frá samningi við China National Fishing Company (CNFC) um kaup á ATW búnaði í togarann Long Teng
Long Teng er togari af Mondsund gerð og hét áður Porechye. Útgerðin er ein sú stærsta í Kína, með 4 stóra togara byggða í Rússlandi auk fjölda minni skipa.
Búnaðurinn frá Naust Marine verður settur í skipið þegar það kemur til Pusan í Suður-Kóreu í október. Þarlendir aðilar munu sjá um niðursetningu, en tæknimenn Naust Marine munu sjá um gangsetningu og lokastillingar. Að því loknu munu tæknimaður og skipstjóri frá Naust Marine fara á veiðar með skipinu í nokkra daga til að þjálfa áhöfn í notkun búnaðarins.
Vonir standa til að í framhaldinu náist samningar við CNFC um kaup á fleiri kerfum Naust Marine. Þá er stefnt að samningum við fleiri útgerðir í Kina, sem flestar eru all stórar með fjölda skipa í mörgum löndum.
Samningurinn við China National Fishing Company er afrakstur samstarfs Naust Marine við Beijing AMADA Marine Consultant Co., Ltd., um sölu á búnaði í Kína. Það samstarf hófst á síðasta ári og er þegar farið að skila árangri.