Naust Marine hefur á undanförnum mánuðum tekið á móti skólahópum og öðrum hópum sem hafa sýnt starfsemi fyrirtækisins áhuga.
Fyrsta hópheimsókn vetrarins var nú í vikunni er útskriftarnemar Vélskólans á Akureyri heimsóttu fyrirtækið.
Heimsóknin hófst á því að gestirnir skoðuðu aðstöðu fyrirtækisins og hlýddu á fyrirlestra um framleiðsluvörur og þjónustu þess. Að því loknu þáðu þeir veitingar og ræddu við nokkra starfsmenn.
Áður hafa aðrir útskriftarhópar úr tækni- og sjómannaskólum svo og Lionsklúbbar heimsótt fyrirtækið.
Naust Marine hvetur þá sem hafa áhuga á að kynna sér starfsemi fyrirtækisins með þessum hætti til að hafa samband.