Góð sala hefur verið á ATW kerfum frá Naust Marine á undanförnum tveimur árum. Árið 2009 voru afhent 10 ný kerfi, öll til erlendra kaupanda. Á þessu ári hafa sjö ný kerfi verið afhent, þar af eitt í íslenskt skip. Á tímabilinu hafa kerfi verið afhent í skip sem fiska allt frá Barentshafi í norðri til Usuaia eyju í Argentínu í suðri.
Lítið hefur verið um að íslenskir útgerðarmenn hafi endurnýjað skip sín að undanförnu og hefur Naust Marine fundið greinilega fyrir því. Má gera ráð fyrir að ótryggt efnahagsástand og óvissa í kvótamálum, valdi þar mestu en mikilvægt er fyrir útgerðir og fyrirtæki, sem þjónusta sjávarútveg, að hafa stöðuleika og forsendur til að skipulegga rekstur sinn til lengri tíma.