Á dögunum kom til heimahafnar í Reykjavík nýtt togveiðiskip, Helga RE-49. Helga er systurskip Skinneyjar og Þóris sem komu fyrr á árinu. Öll skipin voru smíðuð í Ching Fu skipasmíðastöðinni í Kaohsiung á Tæivan.
Flestar vindur eru rafdrifnar og stjórnað með búnaði frá Naust Marine. Togvindunum er stjórnað með ATW kerfinu. Um er að ræða þrjú mismunandi stillanleg kerfi eftir veiðum, hefðbundnar togveiðar með einu trolli en einnig verður tiltölulega einfalt að setja upp þriðja spilið fyrir togveiðar með tveimur trollum. Nýung er að skip af þessari stærðargráðu séu búin rafmagnsvindum, hingað til hefur hann einskorðast við stærri skipin.
Frá Naust Marine er einnig Auto-Gen stjórnbúnaður í vélarrúmi sem stýrir rafölum um borð og aðalrafmagnstafla var einnig smíðuð af Naust Marine. Skipið er í eigu Ingumundar hf.