Naust Marine kynnti nýlega framleiðslu sína á sýningunni Pacific Marine Expo í Seattle í Bandaríkjunum.
Fulltrúar fyrirtækisins urðu varir við mikinn áhuga á fyrirtækinu og starfsemi þess á sýningunni en hún er stærsta sjávarútvegssýning sem haldin er á vesturströnd Bandaríkjanna.
Í ferðinni heimsótti fulltrúi Naust Marine nokkur stór útgerðarfyrirtæki í Seattle, meðal annars stórfyrirtækið American Seafoods en verið er að setja niður ATW togvindu- og kapalvindukerfi frá Naust Marine í Northern Eagle, einn af togurum fyrirtækisins. Einnig er verið að setja niður AUTO-Gen kerfi Naust Marine um borð í Northern Eagle og var fulltrúi Naust Marine viðstaddur frumprófun þess.
Allar prófanir á kerfunum hafa gengið vel og þykja lofa góðu. Stefnt er að því að skipið fari til veiða eftir áramót er veiðar á Alaska-ufsa hefjast. Sérlega mikilvægt er að kerfin reynist vel þar sem ufsaveiðarnar skila um 60% af árstekjum útgerða á svæðinu. Þá fylgjast hugsanlegir kaupendur kerfanna vel með gangi mála og bíða jafnvel með ákvarðanir um kaup á þeim þar til reynsla verður komin á notkun þeirra um borð í Northern Eagle.
ATW kerfi Naust Marine hefur verið í notkun um borð í Bristol Explorer, minna skipi í eigu bandaríska fyrirtækisins B&N Fisheries frá árinu 2006 og reynst mjög vel. 