Vaxtarsprotinn er viðurkenning sem veitt er á vegum Samtaka iðnaðarins, Rannsóknamiðstöðvar Íslands og Háskólans í Reykjavík. Tilgangurinn með veitingu hans er að vekja athygli á góðum árangri sprotafyrirtækja í örum vexti og skapa þannig aukinn áhuga og skilning á uppbyggingarstarfi þessara fyrirtækja.
Naust Marine hlaut viðurkenningu fyrir góðan vöxt á árinu. Fyrirtækið Mentor ehf. hlaut vaxtarsprotann annað árið í röð.
Á meðfylgjandi mynd má sjá Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, sem veitti verðlauna- og viðurkenningahöfum sínar viðurkenningar.