Á dögunum bættust tveir nýir starfsmenn við hópinn okkar hér hjá Naust Marine.
Gunnar Sigurðsson, er reyndur skipstjóri sem hóf störf hjá okkur á nýju ári.
Gunnar mun gegna starfi sölumanns í skipadeild. Hann hefur starfað sem stýrimaður og skipstjóri hér heima og erlendis. Síðastliðin 10 ár sem skipstjóri í Morocco og Mauritaniu, bæði fyrir aðra og í eigin útgerð. Gunnar hefur mikla og víðtæka reynslu af notkun ATW kerfa frá Naust Marine.
Frímann Dór hóf störf í desembermánuði á liðnu ári, hann er í öllu mögulegu, en þið munuð þó líklega helst sjá hann á Naust Marine bílnum að sendast út um allar trissur.
Við bjóðum nýja félaga velkomna í hópinn.