Leiðir kerfa og starfsmanna Naust Marine liggja víða, m.a. til Rómönsku Ameríku.
Nýlega var starfsmaður Naust Marine á ferð í Perú þar sem hann setti upp kapalvindustjórnkerfi í togarann Maestro, sem er í eigu Dong Wong Industries í Suður-Kóreu.
Þá fór starfsmaður þjónustudeildar Naust Marine til Panama fyrr í þessum mánuði til að sinna viðhaldi ATW kerfa í tveimur togurum. Um var að ræða togarana Jose Marti, sem áður hét Alpha, og Simon Bolivar, sem áður hét Angara, en togararnir voru báðir seldir til Venesúela á árunum 2009 og 2010. Skipin hafa ekki i verið að veiðum undanfarið ár vegna eigendaskipta og breytinga en nú stendur til að senda þau á makrílveiðar á Kyrrahafi.
Í Jose Marti er gamalt ATW togvindukerfi frá Naust Marine en í Simon Bolivar er nýlegt ATW kerfi. Bæði verða kerfin notuð við fyrirhugaðar veiðar.
ATW kerfi er einnig um borð í togaranum Echizen Maru sem veiðir við Argentínu, en hann er gerður út af japanska sjávarútvegsrisanum NISSUI. Í skipinu er ATW kerfi og 20 rafdrifnar vindur sem keyptar voru af Naust Marine árið 2009. Skipið veiðir bæði með flotvörpu og botntvörpu á svæðinu frá Hornhöfða í suðri að Falklandseyjum í norðri og eru helstu veiðitegundir hokinhali (Hoki), lýsingur (Hake) og tannfiskur (Pathagonian Toothfish).