Vegna umsvifa Naust Marine erlendis ferðast starfsmenn fyrirtækisins mikið, oft um framandi slóðir þar sem þeir lenda gjarnan í óvæntum aðstæðum. Á undanförnum mánuðum hafa náttúruöflin haft óvenjumikil áhrif á ferðir þeirra. Má þar nefna eldgos á Íslandi og í Chile og jarðskjálfta í Japan.
Í júní lenti starfsmaður Naust Marine í miklum töfum og óvæntum ferðalögum vegna eldgoss í fjallinu Puyehue í Chile en hann var þá á leið til Argentínu til að sinna viðhaldi í togaranum Echizen Maru.
Til stóð að maðurinn flygi frá New York til Buenos Aires og héldi þaðan áfram til Usuaia, syðstu borgar heims, en þaðan er Maru gerður út.
Vegna ösku frá eldgosinu urðu miklar tafir á fluginu til Buenos Aires og að lokum var því snúið til Montevideo í Úruguai. Þaðan komst maðurinn loks til Buenos Aires á milli öskuskýja en þegar þangað var komið tók við vikubið vegna tafa á ferðum togarans. Að viku liðinni stóð loks til að fljúga frá Buenos Aires til Usuaia en þá var flugi aftur aflýst vegna ösku. Var því gripið til þess ráðs að aka 2400 km leið og taka síðan smáflugvél síðasta hluta ferðarinnar sem liggur yfir mikinn fjallgarð.
Maðurinn slapp þó ekki við að aka yfir fjallgarðinn því þegar tímabært var að halda aftur til Buenos Aires lá flug aftur niðri. Mannsins beið því tveggja sólarhringa rútuferð yfir fjöllin í snjóbyl.
Í maí frestaðist einnig námsferð tveggja starfsmanna Naust Marine vegna eldgossins í Grímsvötnum. Ferðin var hluti af þátttöku Naust Marine í Leonardo mannaskiptaverkefni Evrópusambandsins. Skapaði þetta nokkra óvissu um þátttöku mannanna í verkefninu enda gilda strangar reglur um slíkar ferðir. Undaþága fékkst þó og var það í annað sinn á tveimur árum sem veitt var undanþága frá reglum Leonardo vegna flugraskna sem rekja má til eldgosa á Íslandi.
Starfsmaður Naust Marine var einnig staddur í Callao höfninni í Lima í Perú þegar jarðskjálftinn mikli reið yfir Japan í mars. Flóðfylgjuviðvörun var þá gefin út á svæðinu og lokaðist starfsmaðurinn inni á lokuðu hersvæði þar sem hann var við störf í skipinu Maestro. Til stóð að sigla Maestro á haf út til að draga úr þeirri hættu sem af flóðbylgjunni stafaði. Af því varð þó ekki þar sem flóðbylgjan, sem barst að landi við Perú, reyndist ekki jafn stór og óttast var í fyrstu.