Naust Marine lauk nýlega þátttöku í Leonardo da Vinci mannaskiptaverkefni Evrópusambandsins.
Leonardo da Vinci mannaskiptaverkefnið er hluti af starfsmenntunaráætlun Evrópusambandsins og með þátttöku í verkefninu hlaut Naust Marine styrk til tveggja ára. Styrkinn skyldi nota á árunum 2009 til 2011 til að senda fjóra starfsmenn í námsferðir til samstarfsaðila Naust Marine í Evrópu.
Úr varð að starfsmennirnir fóru allir til vikulangrar námsdvalar í Danmörku en hver starfsmaður heimsótti tvö fyrirtæki í ferð sinni.
Fyrri mennirnir tveir fóru til fyrirtækjanna IGE+XAO og Omron Electronics A/S þar sem þeim voru kynntar framleiðsluvörur fyrirtækjanna. Þá lærðu þeir á See Caddy teikniforritið frá IGE+XAO og PLC iðntölvustýriforritið frá Omron.
Seinni mennirnir tveir fóru til PR Electronics A/S og Omron Electronics A/S. Þeim voru einnig kynntar framleiðsluvörur fyrirtækjanna auk þess sem þeir lærðu um PR merkjabreyta og forritun þeirra og á hraðabreyta og fleira frá Omron.
Mennirnir létu allir vel af ferðum sínum og töldu sig hafa lært mikið um vörur og starfsemi fyrirtækjanna sem þeir heimsóttu auk þess sem þeir hafi myndað persónuleg tengsl við starfsmenn þeirra.
Ýmsar hindranir reyndust þó í veginum og fór einn mannanna t.d. á hækjum í ferðalagið þar sem hann hafði nýlega slasað sig. Eldgosið í Grímsvötnum hafði einnig áhrif á ferð seinni mannanna tveggja þar sem flugi var aflýst vegna ösku daginn sem þeir áttu að fljúga til Danmerkur. Niðurstaðan varð þó sú að þeir komust til Danmerkur degi seinna en til stóð og misstu því af fyrsta degi námskeiðs sem þeir voru skráðir á.
Upphaflega stóð einnig til að tveir menn færu til Danmerkur og tveir til Ítalíu. Vegna anna hjá Naust Marine gat hins vegar ekki orðið af fyrirhugaðri ferð til Ítalíu innan þess tímaramma sem settur var varðandi Leonardo verkefnið. Allur undirbúningur vegna fyrirhugaðrar Ítalíuferðar hafði hins vegar farið fram og því fóru tveir starfsmenn Naust Marine í námsferð til Ítalíu á kostnað fyrirtækisins tveimur vikum eftir að Leonardo verkefninu lauk.
Þátttaka Naust Marine í Leonardo verkefninu leiddi því til þess að sex starfsmenn Naust Marine fóru í námsferðir til samstarfsaðila fyrirtækisins í Evrópu.