Árið 2011 hefst
með krafti hjá starfsmönnum Naust Marine en til stendur að setja upp ATW togvindukerfi í fjórum skipum nú
strax eftir áramót. Þýðir þetta miklar annir og ferðalög hjá starfsmönnum fyrirtækisins
sem setja upp kerfin og fara að því
loknu með skipunum í prufutúra.
Skipin eru öll í eigu erlendra aðila og verða starfsmenn Naust Marine því við
störf í a.m.k. þremum heimsálfum á næstunni, Evrópu, Norður Ameríku og Afríku.