Á tímum síhækkandi elsdneytisverðs velta útgerðarmenn, sem aðrir, fyrir sér leiðum til orkusparnaðar um borð í skipum sínum. Eitt af því sem hlýtur að koma til álita er að skipta glussavindum út fyrir rafmagnsvindur.
Vindur, sem notaðar eru með mismunadi hætti eftir því hvers konar veiðarfæri eru í notkun, eru um borð í öllum fiskiskipum. Orka fyrir þessar vindurnar er ýmist framleidd með rafölum sem knúnir eru af aðalvél, ljósavélum um borð eða með vökvadælum sem knúnar eru af aðalvél skipsins og/eða hjálparvélum.
Vindur nota í flestum tilfellum mestan hluta þeirrar orku sem notuð er um borð, að undanskilinni þeirri orku sem fer í að knýja skrúfubúnað og kælikerfi fyrir afla.
Þar sem öflugar vindur eru grundvallaratriði um borð í togveiðiskipum skiptir orkuþörf vindanna miklu máli og hvert % í olíusparnaði getur skipt miklu.
Ef borin eru saman vindukerfi í togurum með vökvadrifin kerfi (glussakerfi) og rafdrifin kerfi, er ekki óraunhæft að áætla að olíusparnaður vegna keyrslu kerfisins sé um 30% sé kerfið rafdrifið en ekki vökvadrifið.
Í stórum togurum sem veiða aðallega uppsjávarfisk hefur sparnaðurinn verið áætlaður á bilinu 150 þús. – 200 þús evrur á ári. Í minni togveiðiskipum er raunhæft að áætla þennan sparnað um 50 þús evrur á ári miðað við 300 veiðidaga.
Naust Marine hefur sérhæft sig í hönnun og smíði á stjórnbúnaði fyrir rafdrifnar vindur um borð í togurum og í dag eru yfir 80 slík kerfi um borð í togurum sem eru að veiðum víða um heim. Má þar nefna fiskimið við Ísland, Færeyjar, Rússland, Kanada, S-Afríku, Argentínu, vesturströnd Bandaríkjanna í Alaska og Grænland.
Naust Marine hefur einnig framleitt kerfi í yfir 40 togara til orkujöfnunar á rafölum skipa en með kerfinu er hægt að auka framdrifsafl með því að nýta ásrafal á aðalvél sem rafmótor til aukningar á skrúfuafli. Með því móti er hægt að hafa minni aðalvél sem keyrð er á hagstæðu afli við veiðar og auka aflið ef á þarf að halda, t.d. í slæmum veðrum.