Naust Marine skrifaði undir samning við American Seafoods í Seattle í Bandaríkjunum í apríl á þessu ári. Samningurinn kveður á um kaup á eftirtöldum búnaði frá Naust-Marine:
2 togvindum
2 kapalvindum
ESG – rafmagnsvírastýri frá Naust Marin
Symap AutoGen kraftstýrikerfi fyrir rafala
Auk þessa mun Naust Marine sjá um að skipta um stjórnkerfi fyrir eftirfarandi glussavindur:
2 netavindur
2 grandaravindur
Stefnt er að því að búnaðurinn verði gangsettur í nóvember.
Einnig hefur Naust Marine hafið samstarf við Harris Electric eitt öflugasta rafmagnsfyrirtæki í Seattle.