Nýja Skinney SF-20, sem smíðuð var á Taiwan kom til Hornafjarðar í byrjun apríl eftir u.þ.b. tveggja mánaða siglingu frá smíðstað. Heimferðin gekk mjög vel þrátt fyrir að Skinney hafi þurft að sigla á sjóræningaslóðir úti fyrir Sómalíu.
Naust Marine hafði milligöngu um smíði skipsins í Taiwan og hafði með allan rafknúna spilabúnaðinn að gera. Spilin voru framleidd hjá Ibercisa en Naust Marine sá um stjórnbúnað og ATW kerfið.
Skinney SF-20 er fjölnotaskip, hannað til veiða með þremur tegundum veiðarfæra, það er botntrolli, snurvoð og netum. Útfærslan fyrir togveiðar er þannig að skipið getur dregið tvö troll við humarveiðar og líkast til er þetta eitt fyrsta fiskiskip í heimi sem búið er rafmagnsvindum fyrir snurvoð. Aðaltaflan um borð í Skinney er smíðuð af Naust Marine, sem og Autogen kerfið. Einnig hafði Naust Marine milligöngu með hliðarskrúfunum sem komu frá Schottel. Skipið er í eigu Skinney Þinganes hf.