Naust Marine hefur gert samstarfssamning við kínversku umboðsskrifstofuna
Amada Marine Consultant í Beijing. Samningurinn er þáttur af samkomulagi
Amada Marine Consultant við þrjú íslensk fyrirtæki en hin fyrirtækin eru Polar
Fishing Gear og Navis. Með samningnum tekur Amada að sér að sjá um að kynna hönnun og framleiðslu fyrirtækjanna á kínverskum markaði. 
Naust Marine bindur töluverðar vonir við samninginn ekki
síst vegna aðkomu Bao Sheng Qing, sem er fyrrum forstjóri stórfyrirtækisins China
National Fisheries Corporations (CNFC).
Samningurinn var undirritaður af fulltúum fyrirtækjanna,
sem ferðuðust saman um Kína og heimsóttu m.a. útgerðir sem eru að huga að
nýsmiðum og breytingum, skipasmíðastöðvar og vinduframleiðendur.
Undir lok ferðarinnar tóku þeir þátt í sýningunni China
Fisheries & Seafood Expo í Dalían. Þar kynnti Naust Marine vörur sínar á sýningarbás Íslandsstofu ásamt öðrum íslenskum
fyrirtækjum.