Í byrjun júlí urðu tímamót hjá Skinney Þinganes er Þórir SF-77 kom í fyrsta sinn til heimahafnar frá Taiwan þar sem skipið var smíðað. Þórir er skip númer tvö í röðinni sem byggt var í Taiwan fyrir Ísland. Skipið er að öllu leiti eins og systurskip þess, Skinney SF-20. Skipið er klæðskerasaumað að þörfum og útgerðarháttum Skinneyjar Þinganess. Reynslan sem komin er á um borð í Skinney á búnaði Naust Marine er mjög góð og áhöfninni þykir mikil breyting frá því að vera sífellt með glussamótora í gangi með tilheyrandi hávaða. Vindukerfið er mjög hljóðlátt og síðast en ekki síst sparast umtalsverð olía á því að vindurnar taka ekki orku nema á henni þurfi að halda. Kerfið sparar þannig dýrmæta olíu.
Fyrir utan togvindurnar eru þrjár grandaravindur; eins sambyggð grandaravinda og togvinda sem notuð er við tveggja trolla veiðar; tvær gilsvindur; ein netvinda; ein pokavinda og ein úthalaravinda. Þær eru allar rafdrifnar og stjórnað með búnaði frá Naust Marine. Aðaltaflan um borð í Þóri er smíðuð af Naust Marine, sem og Autogen kerfið. Einnig hafði Naust Marine milligöngu með hliðarskrúfunum sem komu frá Schottel. Skipið er í eigu Skinney Þinganes hf.