Starfsmenn Naust Marine vinna nú að uppsetningu ATW kerfis í Meridian togaranum General Troshev í borginni Nikolayev norður af Svarta hafi í Úkraínu.
Tveir menn Naust Marine hafa þegar farið til Nikolayev og sett upp kerfið og þriðji maðurinn er þar nú við að yfirfara það. Töluvert er þó enn í að skipið verði tilbúið til veiða en stefnt er að því að sjósetja það síðar á þessu ári.
Skipið er í eigu rússneska fyrirtækisins JSC Preobrazhenskaya. Skrokkur skipsins er einn af síðustu Meridian skrokkunum, sem smíðaðir voru fyrir hrun Sóvétríkjanna, en hann hefur ekki verið sjósettur fyrr en nú.
Alls voru 113 slík skip smíðuð í Nikolayev frá árinu 1974, þar af 9 rannsóknarskip. General Trosherv er sérstakur meðal Meridian togara þar sem hann er byggður sem frystitogari með 150 tonna afkastagetu á dag.
Á uppgangstíma skipasmíðastöðvarinnar í Nikolayev unnu þar 25.000 manns en nú starfa þar um 2.000 manns. Vakti það athygli starfsmanna Naust Marine, er þeir komu þangað fyrst, hversu hátt hlutfall starfsmannanna eru konur. Vinna þær þar, við hlið karla, við ýmis störf sem á Íslandi teljast hefðbundin karlastörf.