Naust Marine lauk um helgina þátttöku sinni í Íslensku sjávarútvegssýningunni 2011.

Sýningin er haldin á þriggja ára fresti og því töluvert í hana lagt. Starfsmenn Naust Marine voru ánægðir að sýningunni lokinni enda heimsótti fjöldi gesta bás fyrirtækisins og kynnti sér starfsemi þess.
Á sýningunni lagði Naust Marine áherslu á að kynna rafdrifna vírastýrið (ESG) sem stuðlar að betri röðun togtauga og víra.
Vírastýrið hefur mælst mjög vel fyrir hjá notendum en það hefur þegar verið tekið í notkun í skipunum Northern Eagle, Faxa, Ingunni, Lundey og Þerney og reynst mjög vel.
Ummæli á Facebook-síðu áhafnar Þerneyjar eru til marks um ánægju notenda en þar segir m.a: “Flott röðun með nýju vírastýrunum frá Naust Marine” og “Þetta er stórkostlegur búnaður og alveg hrikalega einfalt að leiðrétta þegar vírinn rýrnar.”
Vírastýrið passar á flestar gerðir togvinda og stjórnar snúningshraða vírastýrisöxuls til samræmis við breytilegt þvermál togtauga og vírs.