Starfsmenn Iðnstýrideildar Naust Marine
hf eru sérhæfðir í sjálfvirknilausnum fyrir iðnfyrirtæki og hafa langa
reynslu í hönnun og viðhaldi á stjórn- og vaktkerfum fyrir veitur,
frystihús, matvælakerfi, skip og olíufélög. Í þessum kerfum er notast
við skjámyndakerfi sem birtir upplýsingar og viðvaranir á viðeigandi
stað á grafískri mynd af kerfinu. Þar er einnig hægt að breyta
stilligildum fyrir kerfin á einfaldan hátt. Kerfi þessi er hægt að
klæðskerasauma fyrir alla þá sem þurfa að hafa góða yfirsýn yfir búnað
sinn, þægilega stjórnun á öllum vélum og vinnuferlum frá einum stað og
örugga vöktun og rekstraröryggi.
Hægt er að skoða nánari
upplýsingar um kerfi sem hafa verið þróuð með því að smella á hnappana
hér til vinstir.