Hússtjórnunarkerfi Naust Marine eru sjálfvirk eftirlits- og
viðvörunarkerfi fyrir vatns- og hitaveitur sem jafnframt er hægt að nota til að halda utan um og
skipuleggja fyrirbyggjandi viðhald.
Hægt er að útbúa kerfin með tölvuaðgangi í gegnum netið þannig að stjórnendur geti fylgst með ástandi þeirra og jafnvel breytt ákveðnum gildum hvar sem þeir eru staddir.
Öllum kerfum Naust Marine fylgja skjámyndir þar sem teiknaðar eru upp
skilmerkilegar myndir af kerfinu og fram koma lykilgildi fyrir hverja dælu
eða búnað. Kerfin bjóða einnig upp á rauntímaskráningu á lykilgildum þannig að hægt er að
skoða þau í línuritum eða í töflum aftur í tímann. Slíkt getur reynst gagnlegt við rannsóknir eða greiningu á truflunum og bilunum.