Kerfi Naust Marine fyrir vatns- og hitaveitur eru sjálfvirk eftirlits- og
viðvörunarkerfi sem jafnframt má nota til að halda utan um og
skipuleggja fyrirbyggjandi viðhald. Kerfin eru hentug til stjórnunar og eftirlits með mannlausum dælustöðvum. Einnig sinna kerfin rauntímaskráningu á lykilgildum þannig að hægt er að
skoða þau í línuritum eða töflum aftur í tímann. Slíkt getur reynst gagnlegt við rannsóknir og greiningu á truflunum og bilunum
Öllum kerfum Naust Marine fylgja skjámyndir þar sem teiknuð er upp
skilmerkileg mynd af kerfinu og þar sem fram koma lykilgidli við hverja dælu
eða búnað.
Hægt er að útbúa kerfin með tölvuaðgangi í gegn um netið. Slík gerir stjórnendum kerfisins kleift að fylgjast með ástandi þess og breyta ákveðnum gildum hvar sem þeir eru
staddir.