Skipadeild
Naust Marine er einn helsti framleiðandi stýribúnaðar fyrir rafknúnar togvindur í heiminum. ATW CatchControl (Autamatic Trawl Winch) kerfi fyrirtækisins er afrakstur tveggja áratuga þróunarvinnu starfsmanna fyrirtækisins í náinni samvinnu við íslenska sjómenn.
Ekkert annað fyrirtæki í heiminum hefur framleitt stýribúnað fyrir rafknúinar togvindur í jafn mörg og glæsileg skip og Naust Marine. Ánægðir eigendur og áhafnir eru bestu meðmælendurnir með ATW kerfinu okkar. Finna má skipalista með því að smella á hnappinn "Skipalisti" á forsíðu. Einnig má sjá myndir af mörgum skipanna með því að smella á hnappinn “ATW fjölskyldan” hér til vinstri.
AutoGen er annað kerfi sem Naust Marine hefur þróað en því er ætlað að stjórna og samræma kraft mótora. Þá er kerfinu ætlað að hámarka afköst mótora þegar raforkuþörf er mikil. AutoGen kerfinu hefur verið sett upp í mörgum skipum víða um heim. Meiri upplýsingar um kerfið er að finna í kaflanum “AutoGen”.
Naust Marine hefur einnig hannað sjálfvirk eftirlitskerfi f yrir vélarrúm og aðgengilega stjórnklefa fyrir stjórnbúnað.
Naust Marine veitir ráðgjöf og þjónustu varðandi rafbúnað í skipum og hönnun þeirra. Fyrirtækið hefur einnig milligöngu um sölu á rafölum og rafknúnum mótorum.