AUTO-GEN
aflstjórnkerfið
Auto Gen
aflstjórnkerfið frá Naust Marine er sjálfvirkt kerfi sem ætlað er að auka
vélarafl skrúfu, draga úr olíunotkun og viðhaldsþörf.
Auto-Gen kerfið
hentar vel sem uppfærslubúnaður í gömul skip, sem hafa of litlar aðalvélar til
að hægt sé að nota þær óbreyttar með nýjungum í fiskveiðitækni, svo sem ATW-kerfi Naust Marine.
Þrír
helstu kostir AUTO-GEN kerfisins eru:
1.
Aukið vélarafl vegna nýtingar afls frá ljósavél inn á ásrafal.
2.
Með því að deila álagi jafnt á allar díselvélar má komast hjá yfirálagi á
einstakar vélar. Þannig má draga úr viðhaldskostnaði díselvéla og minnka
olíunotkun.
Með aukabúnaði má einnig nota AUTO-GEN
búnaðinn til að flytja afl frá ljósavél um ásrafal til skrúfu, t.d. þegar bilun
kemur upp í aðalvél.
AUTO-GEN
tæknin
Grundvallareiningar AUTO-Gen kerfisins
eru SYmap einingarnar, sem stjórna hverjum rafali fyrir sig og tengja þá öðrum
SYmap einingum. Tengingin stuðlar að snuðrulausri,
samhæfðri stjórn aðalkerfisins og
verndar bæði rafala og díselvélar.
Í AUTO-Gen kerfinu er sjálfvirkt
aflstjórnkerfi sem kemur í veg fyrir yfirálag.
Hægt er að velja á milli þriggja
stillinga fyrir ásrafalinn á stjórnborði AUTO-GEN kerfisins:
Stilling A: Samhverf álagsdreifing
Báðir/allir rafalar nýta sama hlutfall
(%) mögulegs afls síns.
Stilling B: Ósamhverf álagsdreifing.
Báðir/allir rafalar nýta sama hlutfall
(%) mögulegs afls síns. Hvor/hver rafall nýtir fyrirfram valið hlutfall (%)
mögulegs afls síns.
Stilling C: Ósamhverf
dísel-rafmagnsdreifing:
Hvor/hver rafall nýtir fyrirfram ákveðið hlutfall (%)
mögulegs afls en leyfilegt hámarksafl ásrafalsins er fyrirfram ákveðið.
Ásrafallinn virkar því sem aflvél og eykur þannig skrúfuafl skipsins.
Hægt era ð fá AUTO-GEN kerfið afgreitt
með grafískum stjórnskjá. Slíkt er hentugt séu margir rafalar tengdir inn á
kerfið.