Rafdrifið vírastýri ESG (Electrical Spooling Gear)
Árið 2008 hóf Naust Marine framleiðslu á nýrri vöru : Rafdrifnu vírastýri fyrir togvindur ESG (Electrical Spooling Gear). Nú hefur verið gefin út fyrsta uppfærsla kerfisins með viðbótum sem veita stjórnendum kerfisins meiri og betri stjórn á því.
Rafdrifna vírastýrið er hannað fyrir bæði rafknúnar vindur og glussavindur. Með smávægilegum aðlögunum má tengja það flestum gerðum og stærðum vinda.
Helsti tilgangur þessarar tækni er að tryggja góða röðun víra, hvort sem um er að ræða stálvíra eða Dynema (Dynex) togtaugar. Óhentug víraröðun er vandamál sem allir skipstjórnarmenn þekkja. Þetta má rekja til gamalla togvíra, Dynema togtauga eða samskeytinga á togvírum og taugum . Dynema togtaugar geta verið mismunandi að þvermáli og í sumum skipum er togvírum og taugum með mismunandi þvermáli blandað saman. Einnig getur reynst nauðsynlegt að skeyta saman vírum og taugum en það eykur mjög líkurnar á óhentugri röðun.
Allt getur þetta valdið erfiðleikum við að velja réttu stillingarnar fyrir keðjutannhjólin sem notuð eru í flestar vindur. Með ESG kerfi Naust Marine getur skipstjórinn sett inn mismunandi gildi til stjórnunar hraða á vírastýri til samræmis við breytilegt þvermál togtauga og togvíra og þannig tryggt góða röðun
Hvernig vinnur rafdrifna vírastýrið (ESG)?
Rafdrifinn mótor með stjórnbúnaði og umrita er tengdur vírastýrinu með keðju. Breytilegt hraðadrif er notað til að stjórna mótorhraða. “ESG“ kerfinu er stjórnað með snertiská. Í gegnum hann getur stjórnandinn stillt hraða bæði við köstun og hífingu. Þetta er gert þegar kerfið er á kennslustillingu en “ESG” kerfið vistar stillingarnar sjálfkrafa. Breyta má stillingunum hvenær sem þvermál togvíra eða tauga breytist.