Naust Marine var meðal íslenskra fyrirtækja sem tóku þátt í sjávarútvegssýningunni China Fisheries and Seafood Expo sem haldin var í Dalían í Kína dagana 2.-4. nóvember. Á sýningunni kynnti Naust Marine vörur sínar í sýningarbás Íslandsstofu ásamt nokkrum öðrum íslenskum fyrirtækjum.
Sýningin er haldin annað hvert ár og var nú haldin í 15. sinn. Hún er ætluð framleiðendum sjávarafurða, framleiðendum tækni- og tækjabúnaðar og ýmsum þjónustuaðilum við sjávarútveginn.. Hún er stærsta sýning sinnar tegundar í Asíu og koma sýnendur frá um 30 löndum en gestir frá um 50 löndum.
Naust Marine tók nú í fyrsta skipti þátt í sýningunni í Dalían. Fyrir nokkrum árum kynnti fyrirtækið hins vegar vörur sínar á minni útgáfu sýningarinnar sem haldin er í Qingdao.