Naust Marine mun taka þátt í Íslensku sjávarútvegssýningunni sem haldin verður í Smáranum í Kópavogi 22 til 24 september 2011.
Sýningin var fyrst haldin árið 1984. Hún er nú haldin þriðja hvert ár.
Hátt í 500 fyrirtæki frá 33 löndum tóku þátt í sýningunni árið 2008 en þá heimsóttu 12.429 gestir frá 50 löndum sýningarsalina.
Samhliða sýningunni að þessu sinni verður haldin fyrirlestraröð um ábyrgar veiðar undir nafninu ‘Icelandic Responsible Fisheries Programme’.