Kerfi Naust Marine fyrir vatns- og hitaveitur eru sjálfvirk eftirlits- og viðvörunarkerfi sem jafnframt má nota til að halda utan um og skipuleggja fyrirbyggjandi viðhald. Kerfin eru hentug til stjórnunar og eftirlits með mannlausum dælustöðvum. Einnig sinna kerfin rauntímaskráningu á lykilgildum þannig er hægt að skoða þau í línuritum eða töflum aftur í tímann. Slíkt getur reynst gagnlegt við rannsóknir og greiningu á truflunum og bilunum.
Öllum kerfum Naust Marine fylgja skjámyndir þar sem teiknuð er upp skilmerkileg mynd af kerfinu, þar sem fram koma lykilgildi við hverja dælu eða búnað.
Hægt er að útbúa kerfin með tölvuaðgangi í gegnum netið sem gerir stjórnendum þess kleift að fylgjast með ástandi kerfisins og breyta ákveðnum gildum hvar sem þeir eru staddir.