20.febrúar 2019

Snurvoða vindur og stjórnbúnaður fyrir NEELTJE

Naust Marine afhenti nýlega snurvoða vindur og stjórnbúnað fyrir hollenska skipið NEELTJE.

NEELTJE er eitt af fyrstu skipunum í hollenska flotanum sem skiptir úr glussavindum yfir í rafdrifin vindukerfi.

Skipið er í eigu hollensku útgerðarinnar Dutch Cornelis de Boer (Osprey Group) sem smíðar skipið í spænsku skipasmíðastöðinni Nodosa Shipyard á Norður Spáni.

Búnaðurinn frá Naust Marine var prófaður í húsakynnum okkar á Spáni á sérhönnuðum prófunarpalli  en þar er hægt að prófa vindur með allt að 100 tonna átaki, ásamt viðeigandi stjórnbúnaði.  Átak, hraði og önnur virkni vindanna voru meðal annars prófaðar með góðum árangri.



Búnaðurinn frá Naust Marine fyrir Dutch Cornelis de Boer
- 2x snurvoða vindur
- 2x netavindur
- 1x miðvinda
- 2x auka vindur
- Rafmagnsskápar með vatnskældum drifum fyrir snurðvoða vindurnar
- ATW togvindustjórnun

Naust Marine vinnur að því að afhenda samskonar búnað í annað skip sem er í eigu Louwe de Boer.  
Skipið hefur fengið nafnið GOOD HOPE og er einnig í smíðum hjá Nodosa Shipyard.