About cookies on this site

We use cookies to collect and analyze information on site performance and usage, to provide social media features and to enhance and customize content and advertisements.

Read privacy policy

Go to navigation .


  • Um okkur
    • Naust Marine
    • Starfsmenn
    • Starfsstöðvar
    • Laus störf
    • Fréttir
    • Þjónusta
    • Hafa samband
    • Verkefni
  • Rafmagnsvindur
  • Þilfarsbúnaður
  • Vindustjórnun & kerfislausnir
  • Iðnstýribúnaður
  • Verslun
    • Iðnstýribúnaður
      • HMI og display
      • Hitastýringar
      • Ferjöld og merkjabreytar
      • Spennugjafar
      • Teljarar og tímaliðar
      • Iðntölvur
      • Hraðabreytar
      • Skynjarar
      • Iðnaðar PC vélar
      • Relay
      • Hita- og þrýstinemar
    • Mælitæki
      • Fluke handmælar
      • Beamex kvörðunarmælar
      • Amprobe mælar
    • Victron hleðslutæki, áriðlar
      • Áriðlar og hleðslutæki
      • Sólarsellubúnaður
    • Emerson tankmælar
      • Hæðarmælar
      • Yfirfyllingsvarnir
    • Síritar
      • Hitasíritar
      • Fjölnota síritar
    • Ýmislegt
      • Advantech
      • Þráðlaus búnaður
      • Dekkjapumpur
      • Eaton-Bussmann
      • Birgjar
  • Hafa samband
IS
  • EN
  • ES
Close search

Þú ert hér

  • Heim
  • Um okkur
  • Naust Marine

Um okkur


SAMVINNA - METNAÐUR - TRAUST

Naust Marine
er alþjóðlegt tæknifyrirtæki í sjávarútvegi með höfuðstöðvar á Íslandi. Fyrirtækið hóf starfsemi sína árið 1993 og var þá aðallega í þróun og framleiðslu á stjórnbúnaði fyrir togvindur. Í seinni tíð hóf fyrirtækið að hanna og smíða vindur og annan þilfarsbúnað undir merkjum Naust Marine.  Búnaður frá Naust Marine er um borð í allt að 200 skipum víðsvegar um heiminn.

ATW togvindustjórnun  (Automatic Trawl Winch control) hefur verið í þróun nokkurra stofnenda Naust Marine frá árinu 1979 en fyrsta ATW kerfið fór um borð í Ottó N. Þorláksson árið 1981. ATW kerfið er nú um borð í 150 skipum en ekkert annað fyrirtæki í heiminum hefur framleitt stjórnbúnað fyrir rafdrifnar vindur í jafn mörg skip og Naust Marine.

Vinduframleiðsla
Naust Marine hefur til margra ára framleitt vindur undir nafni fyrirtækisins en framleiðslan fer fram í Vigo, á Spáni.

Annar þilfarsbúnaður
Aðrar lausnir frá Naust Marine eru meðal annars rafdrifið vírastýri og AutoGen aflstjórnkerfi. Þá veitir Naust Marine ráðgjöf og þjónustu varðandi stjórnun vindukerfa og hönnun þeirra. Fyrirtækið hefur einnig milligöngu um sölu á varahlutum.

Gæðastefna
Gæðastefna Naust Marine skal tryggja að unnið sé í samræmi við lög og reglugerðir sem fyrirtækinu er gert að starfa samkvæmt.
Gæðastefna Naust Marine skal tryggja að fyrirtækið hanni og framleiði hágæða vörur á hagkvæman hátt og standi jafnframt við umsaminn afhendingartíma til viðskiptavina sinna. Rík áhersla er lögð á prófanir og að stöðug framþróun eigi sér stað samhliða örri tækniþróun. Gæðastefnan skal einnig tryggja að Naust Marine veiti framúrskarandi þjónustu til viðskiptavina sinna.

Stjórnarformaður félagsins er Magnús V. Snædal.

Sagan

  • 1979  - Fyrsta ATW kerfið selt (Rafboði)
  • 1981  - Fyrsta ATW kerfið sett upp um borð í Ottó N. Þorláksson
  • 1993 - Naust Marine formlega stofnað
  • 1995  - Fyrsta ATW kerfið selt út fyrir landsteinana
  • 1998  - ATW kerfið sett upp í Moonzund togara,  (20 önnur fylgdu í kjölfarið)
  • 2006  - Fyrsti togarinn​ í USA fær ​vindur & ATW stjórnbúnað (Bristol Explorer) 
  • 2009  - Höfuðstöðvar Naust Marine flytja - Miðhella 4, Hafnarfjörður
  • 2010  - Vindukerfi ​selt til S. Ameríku (Echizen Maru, Argentína)
  • 2011 - Naust Marine USA stofnað - Seattle (sala og þjónusta)
  • 2012  - Naust Marine afhendir vindukerfi og stjórnbúnað í japanskan togara
  • 2016  - Fyrsta ATW kerfið selt í Meridian togara í Rússlandi
  • 2016  - Naust Marine Serbia stofnað (flutt til Spánar 2018)
  • 2016  - Fyrstu togvindurnar til American Seafoods​
  • 2018 - Naust Marine, Spánn stofnað (hönnun/framleiðsla vinda - sala & þjónusta)
  • 2019  - 10 Rússneskir togarar, 43 vindur í hverju skipi​, kranar og ATW togvindustjórnun
  • 2020  - 50 vindur​, ATW stjórnbúnaður og allur þilfarsbúnaður í Viktor Gavrilov ​​​
  • 2021  - ISO 9001​ vottun á​ Gæðastjórnunarkerfi Naust Marine​
  • 2022  - Naust Marine opnar starfsstöð á Ísafirði
  • 2023  - Nýtt íslenskt rannsóknaskip
  • 2024 - Naust Marine Framleiðsla - Stækkar á Spáni



Neyðarnúmer

843 8500

Miðhella 4 | 221 Hafnarfjörður | Starfsstöðvar

Mánudagur - Fimmtudagur: 08:00 - 16:00 | Föstudagur: 08:00 - 15:00

414 8080

naust@naust.is

  • facebook
  • youtube
  • linkedin
  • instagram