Skutrennuhlið / Ísgálgar / Blakkir
Skutrennuhlið frá Naust Marine miðast við kröfur viðskiptavinarins hverju sinni. Fyrirtækið getur hannað og smíðað skutrennuhlið í öllum stærðarflokkum. Skutrennuhlið frá Naust Marine eru viðhaldslítil og uppfylla allar öryggis- og gæðakröfur sem gerðar eru til slíks búnaðar.
Ísgálgar (Ice Gallows/Davits) frá Naust Marine eru hannaðir til að stunda veiðar í erfiðum og krefjandi aðstæðum í hafís. Ísgálgarnir sjá til þess að stálvírinn (Dyneema) festist ekki í ísnum meðan á togi stendur. Hægt er að fá ísgálga í mörgum stærðum og hönnun þeirra er sérsniðin fyrir hvern og einn viðskiptavin.
Blakkir - Sérsniðnar að aðstæðum hverju sinni.